Guðrún-gull samkvæmisveski/ Elegant small purse
Fullt verð / Regular price
27.900 kr
Vandað, lítið samkvæmisveski með úlnliðsól og langri keðju yfir öxl. Veskið hentar til dæmis vel fyrir síma, vegabréf, lyklana, varalitinn og kortin.
Veskið er unnið úr nautsleðri og íslensku roði, unnið með bútasaums aðferð og sett saman í fallega þjóðlega fléttu framan á veskinu. Roðið í veskinu er karfi, hlýri og lax.
Á veskinu er hangandi skrautlógó sem má taka af og setja á eftir smekk, athugið að engin áföst merking er utaná veskinu, aðeins inn í því. Veskið er ekki með auka hólfum að innan eins og stærri útgáfurnar. Það er vandlega fóðrað og lokað með rennilás að ofan.
Einstakt fallegt veski, hægt að óska eftir gjafakassa og innpökkun.
Stærð á veski: 19x12,5x2 cm