Okkar vinsælu Addú ökklaskór í nýrri æðislegri rokk útgáfu. Skórnir eru úr svartri burstaðri nautshúð með hömruðu marglita metal munstri, sem gerir hvert par einstakt.
Tónarnir í litaflæðinu eru frá ljósbleiku yfir í dökkbleikt, fjólublátt og kóngablátt. Skórnir eru skemmtilega töff og rokkuð útgáfa sem passar vel við buxur, kjóla og pils. Þeir eru flottir við leggings, allt leður og pleður! Handgerðir í litlu upplagi.
Hælhæð: 5 cm einstaklega þægilegir og stöðugir
Innlegg: Mjúk, þægileg HALLDORA innlegg sem gera skóna dásamlega að vera í og draga úr þreytu.
Fóður og frágangur: Leður og góðir YKK rennilásar, gúmmísólar sem þola vel íslenskar aðstæður.