Samkvæmisveski ljósblátt hamrað / Elegant small purse in sky blue
Fullt verð / Regular price24,900 kr
24,900 kr
Vandað, lítið samkvæmisveski með úlnliðsól og langri keðju yfir öxl, í fallegum ljósum himinbláum tónum. Veskið hentar til dæmis vel fyrir síma, vegabréf, lyklana, varalitinn og kortin.
Við gerðum nokkur eintök í þessari skemmtilegu útgáfu, engin tvö veski eru nákvæmlega eins, unnið úr nautshúð með hamraðri áferð og vatnslita prenti. Á veskinu er hangandi silfur skrautlógó sem má taka af og setja á eftir smekk, en engin áföst merking er utaná veskinu, aðeins inni í því. Veskið er ekki með auka hólfum að innan eins og stærri útgáfurnar. Það er vandlega fóðrað og lokað með rennilás að ofan.