Samkvæmisveski ljósbleikt Addú / Elegant small purse blush Addu

Samkvæmisveski ljósbleikt Addú / Elegant small purse blush Addu

Fullt verð / Regular price 24.900 kr 17.430 kr

Vandað, lítið samkvæmisveski með úlnliðsól og langri keðju yfir öxl, unnið í stíl við ljósbleiku hömruðu Addú ökklaskóna með vatnslitaáferðinni og hamraða gullinu og silfrinu. Veskið hentar til dæmis vel fyrir síma, vegabréf, lyklana, varalitinn og kortin.

Við gerðum nokkur eintök í þessari skemmtilegu Addú útgáfu, engin tvö veski eru nákvæmlega eins en ef þú þarft að para veski við skóna þína ertu velkomin að panta í netverslun og hafa svo samband til að fá aðstoð okkar við að para saman skó og veski.
 
Veskið er unnið úr hömruðu nautsleðri, þar sem hluti af skinninu er enn með feldinum á nautsleðri í bakhlið og töfrandi "einhyrnings" áferð í gulli, silfri og rósagulli sett í, mismikið í hverju veski. Á veskinu er hangandi silfur skrautlógó sem má taka af og setja á eftir smekk, en engin áföst merking er utaná veskinu, aðeins inni í því. Veskið er ekki með auka hólfum að innan eins og stærri útgáfurnar. Það er vandlega fóðrað og lokað með rennilás að ofan.

Hægt er að óska eftir gjafaöskju og innpökkun.

Stærð: 19x12,5x2 cm