Frumgerð úr þróun á nýrri línu - fer ekki í framleiðslu og því aðeins til þetta eina einstaka par.
Grá burstuð nautshúð með dekkra munstri og ljósum gull skellum.
Skórnir eru afar þægilegir, smíðaðir með okkar bestu mótum og með mjúkum innleggjum. Hælahæðin er 6,5 cm - en raunhæð hælana jafngildir um 4,5-5 cm þar sem 1,5 cm upphækkun að framan kemur til móts við hæðina ásamt innleggjum.