Blær blue götuskór

Blær blue götuskór

Prix régulier 34.900 kr 34.900 kr Solde

Götuskór/sneakers sem ætlaðir eru fyrir öll kyn.

Skórnir Blær eru unnir úr hvítu nautsleðri og fallegri litaðri blátóna nautshúð, sama skinni og við höfum áður notað í skóna Addú. Falleg burstuð nautshúðin er prentuð með vatnslitamunstri og hömruð með reyklituðu silfri. Handgert, töfrandi og engin tvö pör verða nákvæmlega eins. Hvítir kósar og silfur lógó að framan skreyta skóna og gera þá fínlega og smart. Skórnir ganga við buxur, pils, kjóla og við flest tilefni, hvort sem þú ert á leið í göngutúr, vinnu eða boð og vilt vera í þægilegum skóm. Skórnir eru fóðraðir að innan með mjúku leðri, sem er einnig efsta lagið í innri innleggjunum. Sólarnir eru einstaklega þægilegir, mjúkir, léttir en sterkir EVA sólar (Ethylene-Vinyl Acetate).   

Stærðirnar: Eru svipaðar og í ökklaskónum okkar, svo þú ættir að geta pantað sömu stærð í götulínunni og þú notar í ökklaskónum. Stærðirnar teljast eðlilegar. 

Skipti/skil: Þú hefur 2 vikur til að skipta eða skila vörum sem keyptar eru í netverslun, en það væri gott að heyra frá þér sem fyrst ef þú hyggst skipta eða skila, þar sem vörurnar okkar eru smíðaðar í takmörkuðu magni. Ekki hika við að hafa samband ef þig vantar aðstoð eða ef þú hefur einhverjar spurningar