ELDEY
ELDEY

ELDEY

Prix régulier 44.900 kr Solde

ELDEY eru rauðir en sèrstakir ökklaskór með afar þægilegum hælum og smá upphækkunum að framan. Sniðið er lágt ökklasnið með lægri brúnum að framan og hentar það mjög vel bæði breiðum ökklum og grönnum, sniðið fer nær öllum vel.

Hönnunin er innblásin af íslenskum eldstöðvum og gígum og dregur nafn sitt þaðan.
Skórnir eru smíðir úr nautsleðri/rúskinni með glansandi filmupressuðu/hömruðu nautsleðri í hraun-hringjunum. Einstakt handbragð og fallegur saumaskapur ásamt vönduðum brydduðum leðurbrúnum. Götin í miðjum brjóta upp formið og getur verið mjög fallegt að fara í litaða sokka undir og setja þannig þinn brag á útlitið hverju sinni og para skóna við hvaða klæðnað sem er. 
Skórnir eru fáanlegir í stærðum 36-43. 

Skórnir eru afar þægilegir, smíðaðir með okkar bestu mótum og með mjúkum innleggjum. Hælahæðin er 6,5 cm - en raunhæð hælana jafngildir um 4,5-5 cm þar sem 1,5 cm upphækkun að framan kemur til móts við hæðina ásamt innleggjum. 

ELDEY (Translates: Island of Fire) unique all red ankleshoes inspired by Icelandic volcanoes, Surtsey and Hverfjall. Limited, handmade and unique. 
Available in sizes 36-43.