Við verðum á sýningunni NORÐLENSK HÖNNUN OG HANDVERK í Hlíðarbæ við Akureyri 6.-7. desember. Opið frá 11-17. Velkomin!

Alda götuskór úr fléttuðu leðri
Alda götuskór úr fléttuðu leðri
Alda götuskór úr fléttuðu leðri

Alda götuskór úr fléttuðu leðri

Prix régulier 36.900 kr 36.900 kr Solde

Við notum mismunandi leður, rúskinn, roð, nautshúð og fleira fallegt og sérstakt í götuskó línuna, ásamt einstaklega þægilegum, léttum en sterkum EVA sólum (Ethylene-Vinyl Acetate) og góð innlegg sem gera skóna afar þægilega. Handgerðir í afar takmörkuðu upplagi. 

Skórnir Alda eru unnir úr vönduðu mokkabrúnu nautsleðri og bylgjuðu burstuðu mokka fléttuðu/ofnu nautsleðri. Nautsleðrið er létt lakkað og því aðeins glansandi sem gefur skónum glæsilegan brag og dregur fram þrívíddaráhrif ofna leðursins innblásið frá öldum hafsins.

Kósarnir og merkingin að framan eru úr dökku stáli (gunmetal). Skórnir eru fóðraðir að innan með mjúkri bómullar-poly blöndu en efsta lagið á innleggjunum í botnum er leður. 

Stærðirnar frá 36-45 eru nokkuð venjulegar. Stærðir frá 42 og uppúr eru gerðar örlítið breiðari. 
Einstaklega flottir og klassískir götuskór, fallegir í litlum og stórum stærðum.