Samkvæmisveski ljósgrænt hamrað / Elegant small pastel green purse
Normaler Preis
24.900 kr
13.900 kr
Angebot
Vandað, lítið samkvæmisveski með úlnliðsól og langri keðju yfir öxl, í fallegum ljósum grænum tónum. Veskið hentar til dæmis vel fyrir síma, vegabréf, lyklana, varalitinn og kortin.
Við gerðum nokkur eintök í þessari skemmtilegu útgáfu, engin tvö veski eru nákvæmlega eins, unnið úr nautshúð með hamraðri áferð og vatnslita prenti.
Á veskinu er hangandi silfur skrautlógó sem má taka af og setja á eftir smekk, en engin áföst merking er utaná veskinu, aðeins inni í því. Veskið er ekki með auka hólfum að innan eins og stærri útgáfurnar. Það er vandlega fóðrað og lokað með rennilás að ofan.
Hægt er að óska eftir gjafaöskju og innpökkun.
Stærð: 19x12,5x2 cm