Glæsilegir ökklaskór í sama sniði og vinsælu Addú skórnir okkar. Skórnir eru úr svartri hrosshúð með laserútskornu draumkenndu munstri, sem gerir hvert par einstakt.
Skórnir eru í senn fínlegir en afar öðruvísi og passa vel við buxur, kjóla og pils. Við smíðum þá í litlu upplagi.
Hælhæð: 5 cm einstaklega þægilegir og stöðugir
Innlegg: Mjúk, þægileg HALLDORA innlegg sem gera skóna dásamlega að vera í og draga úr þreytu.
Fóður og frágangur: Leður og góðir YKK rennilásar, gúmmísólar sem þola vel íslenskar aðstæður. Gott er að hafa í huga að vatnsverja skóna með spray vörn.