Gunnhildur götuskór
Gunnhildur götuskór
Gunnhildur götuskór

Gunnhildur götuskór

Normaler Preis 35.900 kr Angebot

Við kynnum nýju línuna okkar, götuskó/sneakers sem ætlaðir eru fyrir öll kyn.

Línan hefur verið í yfir 3 ár í hönnun, þróun og vinnslu en skórnir eru smíðaðir í litlu upplagi í hverri gerð í stærðum 35-45. Við notum mismunandi leður, rúskinn, roð, nautshúð og fleira fallegt og sérstakt í línuna, ásamt einstaklega þægilegum, mjúkum, léttum en sterkum EVA sólum (Ethylene-Vinyl Acetate) og góð innlegg sem gera skóna afar þægilega. 

Skórnir Gunnhildur eru unnir úr hvítu leðri og íslensku laxaroði, hvítu með gulli. Gull leðurbrydding, hvítir kósar og gull lógó að framan skreyta skóna og gera þá fínlega og smart. Skórnir ganga við buxur, pils, kjóla og við flest tilefni, hvort sem þú ert á leið í göngutúr, vinnu eða boð og vilt vera í þægilegum skóm. Skórnir eru fóðraðir að innan með mjúku leðri, eins og er í efsta laginu á innri innleggjunum.

Stærðirnar: Eru svipaðar og í ökklaskónum okkar, svo þú ættir að panta sömu stærð í götulínunni og þú notar í ökklaskónum. Stærðirnar teljast eðlilegar.

Skipti/skil: Þú hefur 2 vikur til að skipta eða skila vörum sem keyptar eru í netverslun, en það væri gott að heyra frá þér sem fyrst ef þú hyggst skipta eða skila, þar sem vörurnar okkar eru smíðaðar í takmörkuðu magni. Ekki hika við að hafa samband ef þig vantar aðstoð eða ef þú hefur einhverjar spurningar.