Blær blue götuskór

Blær blue götuskór

Normaler Preis 34.900 kr Angebot

Við kynnum nýju línuna okkar, götuskó/sneakers sem ætlaðir eru fyrir öll kyn.

Línan hefur verið í yfir 3 ár í hönnun, þróun og vinnslu en skórnir eru smíðaðir í litlu upplagi í hverri gerð í stærðum 35-45. Við notum mismunandi leður, rúskinn, roð, nautshúð og fleira fallegt og sérstakt í línuna, ásamt einstaklega þægilegum, mjúkum, léttum en sterkum EVA sólum (Ethylene-Vinyl Acetate) og góð innlegg sem gera skóna afar þægilega. 

Skórnir Blær eru unnir úr hvítu nautsleðri og fallegri litaðri blátóna nautshúð, sama skinni og við höfum áður notað í skóna Addú. Falleg burstuð nautshúðin er prentuð með vatnslitamunstri og hömruð með reyklituðu silfri. Handgert, töfrandi og engin tvö pör verða nákvæmlega eins. Hvítir kósar og silfur lógó að framan skreyta skóna og gera þá fínlega og smart. Skórnir ganga við buxur, pils, kjóla og við flest tilefni, hvort sem þú ert á leið í göngutúr, vinnu eða boð og vilt vera í þægilegum skóm. Skórnir eru fóðraðir að innan með mjúku leðri, sem er einnig efsta lagið í innri innleggjunum. 

Stærðirnar: Eru nú svipaðar og í ökklaskónum okkar, svo þú ættir að geta pantað sömu stærð í götulínunni og þú notar í ökklaskónum. Stærðirnar teljast eðlilegar, jafnvel örlítið rúmar.

Skipti/skil: Þú hefur 2 vikur til að skipta eða skila vörum sem keyptar eru í netverslun, en það væri gott að heyra frá þér sem fyrst ef þú hyggst skipta eða skila, þar sem vörurnar okkar eru smíðaðar í takmörkuðu magni. Ekki hika við að hafa samband ef þig vantar aðstoð eða ef þú hefur einhverjar spurningar