HALLA
HALLA
HALLA

HALLA

Fullt verð / Regular price 47.900 kr 47.900 kr

Nýju skórnir okkar HALLA eru fallega þjóðþegir, Íslandsbláir ökklaskór með afar þægilegum hælum og smá upphækkunum að framan. Glæsilegir með silfur hringjum úr hömruðu leðri. Sniðið er lágt ökklasnið með lægri brúnum að framan og hentar það mjög vel bæði breiðum ökklum og grönnum, sniðið fer nær öllum vel.

Hönnunin er innblásin af íslenskum gígum og dregur nafn sitt frá hinni fögru Surtsey og Hverfjalli í Mývatnssveit.
Skórnir eru smíðir úr nautsleðri/rúskinni með glansandi filmupressuðu/hömruðu nautsleðri í hraun-hringjunum. Einstakt handbragð og fallegur saumaskapur ásamt vönduðum brydduðum leðurbrúnum. Götin í miðjunum brjóta upp formin og getur verið mjög fallegt að fara í litaða sokka, net, blúndur eða glimmer undir og setja þannig þinn brag á útlitið hverju sinni og para skóna við hvaða klæðnað sem er. 

Skórnir verða fáanlegir í stærðum 36-43 en við eigum aðeins til 39,40,41. 

Skórnir eru afar þægilegir, smíðaðir með okkar bestu mótum og með mjúkum innleggjum. Hælahæðin er 6,5 cm - en raunhæð hælana jafngildir um 4,5-5 cm þar sem 1,5 cm upphækkun að framan kemur til móts við hæðina ásamt innleggjum. 

 

HALLA, unique all Iceland blue ankleshoes inspired by the Icelandic volcanic island Surtsey and Hverfjall near Lake Mývatn.