ÍSLENSKA: Einstaka millistóra taskan okkar ADDÚ í marglita rokk stílnum, hentar td. fyrir staðlaða stærð af ipad. Taskan er unnin í stíl við svörtu Addú öklastígvélin okkar með hamraða marglita munstrinu, og úr olíubornu nautsleðri í bakhlið. Engar tvær töskur eru nákvæmlega eins. Löng þykk ól fylgir sem má taka af. Töskunni er lokað með góðum rennilás, hún er fóðruð að innan með einum renndum vasa og öðru opnu hliðarhólfi.
STÆRÐ Á TÖSKUNNI : 27x22x5 cm Verð 38.900
Athugið að minna veskið á einni myndinni fylgir ekki með, verðið á litla veskinu er 24.900